Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Álfagullið
Preview this ebook
Álfagullið
Member Price: $1.99 (what is it?)
Regular Price: $1.99
   (Quantity: 1)
Availability:
Ebook in EPUB format. Available for immediate download after we receive your order
Publisher:
Saga Egmont International
DRM:
Watermark
Publication Year:
2022
ISBN-13: 9788728036433
Description:
Gullsmiður og skraddari voru saman á ferðalagi þegar þeir heyra einkennilegan söng. Þeir ganga á hljóðið og finna hóp af dvergum dansandi og syngjandi saman í hring. Inni í miðjum hringnum stóð gamall maður og brýndi hníf. Gamli maðurinn rakar skegg og hár af þeim félögum sem nú var hætt að lítast á blikuna enda alls ekki vissir um það hvort þeir væru staddir í raunheimum eða í draumi. Daginn eftir vakna gullsmiðurinn og skraddarinn með vasana fulla af gulli. Gullsmiðurinn vill ólmur gera aðra tilraun til að hitta dvergana og freista þess að fá meira gull á meðan skraddarinn var ánægður með sinn hlut. Gullsmiðurinn heldur af stað til fundar við dvergana en allt fer á annan veg fyrir gullsmiðinn sem mátti sætta sig við að græðgin varð honum að falli.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
Ebook Preview
   (Quantity: 1)