Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Tungumálin þrjú
Tungumálin þrjú
Member Price: $1.99 (what is it?)
Regular Price: $1.99
   (Quantity: 1)
Availability:
Ebook in format. Available for immediate download after we receive your order
Publisher:
Saga Egmont International
DRM:
Open - No Protection
Publication Year:
2022
ISBN-13: 9788728038765
Description:
Í ævintýrinu Tungumálin þrjú segir frá gömlum aðalsmanni sem átti einn son. Aðalsmaðurinn sendir son sinn til frægra kennara í öðrum löndum því sonurinn þótti svo heimskur og virtist ekkert geta lært. Allar tilraunir til þess að kenna syni aðalmannsins misheppnuðust, að því er virtist í fyrstu, og í bræði sinni vísar aðalsmaðurinn syni sínum á dyr. Sonurinn hefst við í skóginum og virðist geta leyst úr ótrúlegustu vandamálum sem upp koma í sveitunum í kring, þökk sé náminu sem faðir hans taldi einskis vert.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.