Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Saga Lauris
Preview this ebook
Saga Lauris
Member Price: $2.99 (what is it?)
Regular Price: $2.99
   (Quantity: 1)
Availability:
Ebook in EPUB format. Available for immediate download after we receive your order
Publisher:
Saga Egmont International
DRM:
Watermark
Publication Year:
2020
ISBN-13: 9788726512533
Description:
Lítill drengur með glettnisblik í augum heilsaði feimnislega og afréð svo að snúa sér aftur að leikjum sínum og leyfa okkur fullorðna fólkinu að drekka kaffið saman í næði. Þetta var mánudaginn 5. janúar 1987. Það var fyrsti vinnudagur minn sem lögregluþjónn við götulögregludeildina í Pori. Félagi minn var reyndur og hress lögregluþjónn að nafni Matti sem tók að sér að kenna nýgræðingi undirstöðuatriði við umferðargæslu.

Síðdegis var Saabinum snúið á leið til Nakkila, þar sem Matti bjó, og þar hafði konan hans hitað kaffi handa okkur. Matti sýndi mér hreykinn fjölskyldu sína. Það sem ég man skýrast frá þessari notalegu samverustund er einmitt litli, svarthærði Lauri sem ég raulaði um í huga mér gömlu barnagæluna „Litli, litli Lauri". Eftir að við höfðum verið saman á óteljandi vöktum skildi leiðir okkar Matta þegar ég var færður í starf rannsóknarlögreglumanns á lögreglustöðinni í Pori þann 1. febrúar 1988.
Ebook Preview
   (Quantity: 1)