Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Ronin 1-5
Preview this ebook
Ronin 1-5
Member Price: $9.99 (what is it?)
Regular Price: $9.99
   (Quantity: 1)
Availability:
Ebook in EPUB format. Available for immediate download after we receive your order
Publisher:
Saga Egmont International
DRM:
Watermark
Publication Year:
2020
ISBN-13: 9788726475098
Description:
RONIN 1 - SVERÐIÐ

Lítill strákur vaknar í miðjum skógi. Hann hefur enga hugmynd um hver hann er eða hvernig hann komst þangað. Með hjálp manna og dýra og sverðs sem býr yfir sérstökum krafti kemst þessi ronin í gegnum mörg ævintýri. Þegar lítið þorp þarfnast verndar hans verður hann að læra að berjast með sæmd fyrir bændurna sem hann þarf að bjarga og fyrir sjálfan sig.

RONIN 2 - BOGINN

Ronin hittir gamlan vin og byrjar að þjálfa með sínum sensei og kemst að því að ekkert er ómögulegt. Ævintýrin halda áfram og Ronin gerist verjandi þeirra sem standa höllum fæti og notar krafta sína til góðra verka. Ronin kemst að ýmsu um sjálfan sig og kannski hvaðan hann kemur.

RONIN 3 - SPJÓTIÐ

Ronin tekst á við mikla áskorun og kemst að því að ekki er alltaf allt sem sýnist, jafnvel ekki í fari óvinarins. Um leið hann fræðist um fortíð sína, föður sinn og sverðið sitt, vakna fleiri spurningar. Í nýjasta ævintýrinu kemst Ronin nær því að skilja hver hann er og hvernig hann getur hjálpað þeim sem honum þykir vænst um.

RONIN 4 - KLÓIN

Ronin heldur áfram ferð sinni til Meifumadô. Á leiðinni verður hann fyrir árás óvina sem eru grimmari en nokkur sem hann hefur áður kynnst. Hann hittir fleiri vini og neyðist til að taka erfiðar ákvarðanir og þarf að sigrast á erfiðum hindrunum.

RONIN 5 - UPPGJÖRIÐ

Í síðasta hlutanum af sögunum um Ronin fer Ronin til Meifumadô til að mæta örlögum sínum og bjarga lífi Azami. Í bardaganum við Skuggakonunginn og djöfla hans fræðist Ronin um fortíð sína og fjölskyldu og hvernig hann getur verið trúr sjálfum sér. Í afar erfiðum aðstæðum þarf Ronin að muna hvað sannur bardagamaður þarf að hafa til að bera.
Ebook Preview
   (Quantity: 1)