Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Skraddarinn hugprúði
Skraddarinn hugprúði
Prix membre: 4,99$ (qu'est-ce que c'est?)
Prix régulier: 4,99$
   (Quantité: 1)
Disponibilité:
Ebook en format . Disponible pour téléchargement immédiat après la commande.
Éditeur:
Saga Egmont International
Protection:
Format ouvert - aucune protection
Année de parution:
2022
ISBN-13: 9788728038253
Description:
Skraddari nokkur, smávaxinn en hugprúður, sat við sauma þegar bóndakona býður honum að kaupa af sér hunang. Skraddarinn smyr nýkeyptu hunanginu á væna brauðsneið og lætur standa á meðan hann klárar verkin. Hunangið laðar til sín flugnager mikið sem skraddarinn fargar með einu slagi. Hreykinn af afreki sínu, saumar skraddarinn linda um mittið á sér með slaogorðinu "Sjö í einu höggi" og leggur af stað út í hinn stóra heim til að segja frá afreki sínu. Þegar skraddarinn kemur að höll konungsins þykir hermönnum konungs í fyrstu ekki mikið til þessa væskilslega manns koma. Það renna þó á þá tvær grímur þegar þeir sjá að þar fari mögulega stríðsmaður mikill sem slegið hefur sjö í einu höggi.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.