Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Leyndarmál suðurhafsins
Preview this ebook
Leyndarmál suðurhafsins
Member Price: $9.99 (what is it?)
Regular Price: $9.99
   (Quantity: 1)
Availability:
Ebook in EPUB format. Available for immediate download after we receive your order
Publisher:
Saga Egmont International
DRM:
Watermark
Publication Year:
2023
ISBN-13: 9788728421093
Description:
Þegar hinn ungi Howard Thorne er kallaður á fund hjá ástkærum fóstra sínum fær hann loksins að heyra sannleikann um örlög foreldra sinna. Eftir að hafa verið ranglega sakaður um peningaþjófnað flúði faðir hans land en var talinn hafa látist af slysförum á sjó. Nýjar upplýsingar benda þó til annars og leggur Thorne upp í langferð með briggskipinu Naida undir traustri leiðsögn Latimers skipstjóra. Von hans er sú að finna föður sinn á lífi og hreinsa nafn hans af röngum sakargiftum.

W. Bert Foster (1869-1929) var bandarískur rithöfundur. Hann skrifaði afþreyingarbókmenntir í formi smásagna og skáldsagna. Ásamt því að skrifa undir eigin nafni starfaði hann einnig sem skuggaskrifari fyrir bókaútgáfuna Stratemeyer Syndicate sem gaf út fjölmargar barnabókaseríur. Þar að auki var Foster viðloðandi kvikmyndagerð en árið 1921 kom út myndin „The Last Door" þar sem hann var meðal þriggja höfunda. Þar á eftir fylgdu nokkrar vestrænar kvikmyndir sem voru allar byggðar á sögum Fosters. Kvikmyndirnar voru allar svarthvítar og þöglar.
Ebook Preview
   (Quantity: 1)