Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Ferðaævintýri Þumals litla
Ferðaævintýri Þumals litla
Member Price: $1.99 (what is it?)
Regular Price: $1.99
   (Quantity: 1)
Availability:
Ebook in format. Available for immediate download after we receive your order
Publisher:
Saga Egmont International
DRM:
Open - No Protection
Publication Year:
2021
ISBN-13: 9788728038161
Description:
Þumall er agnarsmár en afar hugaður ungur drengur sem á sér þá ósk heitasta að kanna heiminn. Þumall lendir í ótal ævintýrum á ferðalagi sinu og á vegi hans verða margar fjölskrúðugar persónur sem ekki hafa allar hreint mjöl í pokahorninu.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.